Teymi

Hjá lögmannateymi okkar eru sérfræðingar með mikla reynslu og tæknilega þekkingu á ýmsum sviðum lögfræðinnar, þar með talið borgaralegum lögum, refsirétti, vinnurétti, viðskiptarétti, fasteignarétti og skattarétti. Að auki höfum við fleiri sérfræðinga á okkar snærum sem gerir okkur kleift að bjóða viðskiptavinum okkar fjölbreytta þjónustu af ýmsu tagi.

Daniel E. Bohórquez

Daniel E. Bohórquez Eiriksson, er meðstofnandi og framkvæmdastjóri Spánar Lögmanna. Hann er starfandi lögmaður skráður með númer 1937 hjá félagi lögmanna í  Orihuela. Hann er útskrifaður í lögfræði frá háskólanum í Alicante og með meistaragráðu í aðgangi að lögfræðistörfum frá Cardenal Herrera-CEU háskólanum.

Hann sérhæfir sig í almannarétti og snýst starfsemi hans að mestu um sameiginlega stjórnsýslumeðferð og málsmeðferð ágreinings við stjórnsýslu; sérstaklega hvað varðar borgarskipulag, samninga hins opinbera og eignaábyrgð opinberrar stjórnsýslu.

Hann talar spænsku, ensku og íslensku.

Hrafnhildur O. Eiríksdóttir

Hrafnhildur Ósk Eiríksdóttir, er meðstofnandi og löggiltur þýðandi í báðar áttir í spænsku og íslensku. Hún er skráð á Spáni hjá Utanríkisráðuneytinu, Evrópusambandinu og samstarfsráðuneyti með skráningarnúmeri 11.394; sem og á Íslandi á skrá yfir löggilta skjalaþýðendur og dómtúlka island.is.

Hún hefur meira en 25 ára starfsreynslu á Costa Blanca, þar sem hún hefur verið útibússtjóri bæði hjá CAM (Caja de Ahorros del Mediterráneo), og síðar hjá Banco Sabadell, sem hefur aflað henni ítarlegri þekkingu á starfsemi bankageirans sérstaklega hvað varðar tengsl hans við fasteignamarkaðinn.

Hún talar íslensku, spænsku, ensku og norðurlandamál.

Eva M. Bohórquez

Eva M. Bohórquez Eiríksdóttir, er í skrifstofustarfi hjá Spánar Lögmönnum.

Hún hefur víðtæka reynslu í skjala- og stjórnsýslustjórnunar, þökk sé fyrri reynslu hennar á ræðismannsskrifstofu Íslands í Orihuela Costa, sem og í fasteignageiranum.

Hún talar reiprennandi íslensku, ensku og spænsku.

Scroll to Top